Dóra & Döðlurnar
Á fimmtudagskvöldum býður LÓA Restaurant upp á lifandi tónlist frá efnilegum ungum hljómsveitum í Reykjavík.


Staður & stund
12. feb. 2026, 20:00 – 21:00
Lóa Restaurant, Laugavegur 95, 101 Reykjavík, Ísland
Viðburðurinn
Á fimmtudagskvöldum býður LÓA Restaurant upp á lifandi tónlist frá efnilegum ungum hljómsveitum í Reykjavík.
Tónleikaröðin Next Generation kynnir listafólk úr Center Studios – Reykjavík, skapandi rými sem tengist helstu tónlistarskólum landsins. Þar eru ungir tónlistarmenn, oft á unglingsaldri að stofna hljómsveitir, semja eigin lög og móta sinn hljóm og sviðsframkomu.
Hljómsveit kvöldsins: Dóra & Döðlurnar
Þær koma með kraftmikla girl-pop-rock orku og ferska frumsamda tónlist beint úr Reykjavík. Þær hafa hlotið sérstök verðlaun fyrir lagasmíðar í hinni virtu „Battle of the Bands“ keppni og sum ykkar kannast eflaust við meðlimi sveitarinnar úr undankeppni Söngvakeppninnar, leið Íslands inn í Eurovision.
https://www.youtube.com/watch?v=8s6--P-dFkE
Frítt inn og skemmtilegt kvöld fyrir alla sem eru forvitnir um næstu kynslóð tónlistar á Íslandi.
