top of page

Íslenskt gin

Kokteilupplifun

7.590 kr. á mann

Kokteilupplifun þar sem áherslan er á hreint íslenskt gin. Gestir kynnast íslenskum jurtum og hráefnum og menningu í gegnum tvo sérvalda gin kokteila af kokteilseðlinum okkar. Gestir fá að útbúa sjálfir einn kokteil undir leiðsögn, á meðan barþjónn blandar annan fyrir þá. Gestir geta pantað fleiri kokteila eða lengt upplifunina með öðrum útfærslum og öðrum verðum, allt eftir stærð hóps og fyrirkomulagi.

hula + Lóa brand (4).png

Íslensk sterk vín & kokteilupplifun

7.990 kr. á mann

Smökkun á nútímalegum íslenskum sterkum vínum, parað við sérblandaða kokteila frá okkar barþjónum. Gestir kynnars íslensku gini, snöfsum og öðrum sérstökum íslenskum drykkjum á meðan sagt er frá íslenskum hráefnum, drykkjarmenningu og þróun íslenskra brennivína. Afslöppuð, vönduð og skemmtileg upplifun fyrir bæði ferðamenn og heimafólk.

Íberískt vínferðalag

(Án matar)

7.990 kr. á mann

Vínferðalag um áhugaverðustu vínsvæði Spánar og Portúgals. Gestir smakka sérstök íberísk vín og kynnast ólíkum þrúgum, vínsvæðum og sögum sem sjaldnast rata á hefðbundna vínseðla. Létt og lifandi upplifun sem hentar vel fyrir kvöldverð eða sem skemmtileg vínkynning.

hula + Lóa brand.png

Íberískt vínferðalag

(Með mat)

11.990 kr. á mann

Vönduð vínupplifun þar sem íberísk vín eru pöruð með sérvöldum smáréttum úr eldhúsinu okkar. Gestir uppgötva hvernig vín frá Spáni og Portúgal njóta sín með mat með leiðsögn í notalegu umhverfi. Tilvalið fyrir sérstök tilefni, stefnumót og gesti sem vilja dýpri matar- og vínupplifun.

Lóa Matur & Vín

Laugavegur 95-99, 101 Reykjavík

loa@loa.is

595 8575

Opið alla daga
Eldhús 18:00 - 22:00

Bar 16:00 - 00:00

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page