Jónsmessa - Matur & Mjöður
Þriðjudaginn 24. júní bjóðum við upp á notalegt Jónsmessukvöld á Lóa Matur & Vín með sérstakri þriggja rétta upplifun þar sem matur og mjöður frá Öldur Brugghúsi fá að njóta sín saman.


Staður & stund
24. jún. 2026, 17:00 – 22:00
Lóa Matur & Vín, Laugavegur 95-99, 101 Reykjavík, Ísland
Viðburðurinn
Kvöldið hefst með forrétti að eigin vali af sérvöldum matseðli, parað við Flugu, léttan og ferskan kryddmjöð sem sækir innblástur í íslenskt sumar og villtar íslenskar jurtir.
Með aðalréttinum er borinn fram Ingólfur, hefðbundinn mjöður úr villiblómahunangi með blóðbergi og hvannarfræjum sem gefa honum sérstakan íslenskan karakter.
Að lokum tekur við eftirréttur að eigin vali ásamt sérútbúnum mjöðkokteil, sem fullkomnar kvöldið með sætum og sumarlegum tónum.
3 rétta matseðill með mjöðpörun -14.990 kr.
Sérstakt kvöld fyrir þá sem hafa gaman af góðum mat, nýjum bragðupplifunum og þeirri einstöku stemningu sem fylgir björtum Jónsmessukvöldum.
Þú getur bókað borð hér!
