Re Argentína Upplifun - Tangó & Vín
Verið velkomin á líflegt kvöld þar sem argentínskur tangó, gott vín og ljúffengar veitingar mætast á Lóa Matur & Vín.


Staður & stund
14. ágú. 2026, 19:00 – 21:00
Lóa Matur & Vín, Laugavegur 103, 105 Reykjavík, Ísland
Viðburðurinn
Í samstarfi við Re Argentina býðst einstakt tækifæri til að kynnast argentínskum tangó undir leiðsögn Melinu García, sem hefur yfir 15 ára reynslu af kennslu í argentínskum tangó.
Þátttökugjald: 4.900 kr. á mann
Innifalið:
• Eins klukkustundar tangónámskeið á ensku - engin fyrri reynsla af tangó er nauðsynleg og hægt er að mæta með dansfélaga eða koma einn
• Eitt glas af argentínsku víni
• Einn ekta Re Argentina alfajor, með hvítu súkkulaði eða mjólkursúkkulaði, fylltur með hefðbundnu dulce de leche.
Pláss eru takmörkuð og því gott að tryggja sér sæti með góðum fyrirvara. Þú getur bókað HÉR.
Við hlökkum til að eiga með ykkur notalega kvöldstund þar sem dans, vín og argentínsk matarhefð fá að njóta sín.
